Allianz sparnaðarlíftrygging

Líf þitt er einstakt og sérstakt. Target4Life, framsækna tryggingalausnin frá Allianz Global er það líka.

Líf þitt er einstakt og sérstakt. Target4Life, framsækna tryggingalausnin frá Allianz Global er það líka.

Enginn þekkir þig eins og þú; hver eru fjárfestingarmarkmið þín og hversu lengi viltu fjárfesta. Með Allianz Target4Life útvistar þú fjárfestingarvali þínu að fullu til Allianz sem mun sjá um allt fyrir þig.

Varan er hönnuð fyrir langtímafjárfestingar og ávinningurinn er þinn eins lengi og þú heldur samningnum á lífi.

Hverjir eru kostir Allianz Target4Life?

  • Lífsferill. Knúinn áfram af breytilegum aðstæðum, varan þróast með þér og aðlagar fjárfestingastefnu þína þar til markmiði er náð.
  • Persónumiðað. Sérsniðið fjárfestingarsafn sniðið að hverjum viðskiptavini út frá áhættuvilja þeirra, tímaramma og greiðslu iðgjalda.
  • Sveigjanleiki. Val um mismunandi greiðslur iðgjalds eftir þörfum og óskum hvers viðskiptavinar.
  • Tækifæri. Framúrskarandi áhættustjórnun og vandlegt eftirlit með því markmiði að ná sem bestri ávöxtun með sem lægstu áhættu.
  • Vernd. Vernd í formi líftryggingar sem hjálpar til við að vernda ástvini þína ef um ótímabært andlát ber að hendi.
  • Hugarró. Skipuleggðu flutning eigna þinna með því að tilnefna rétthafa í tilfelli andláts (að því marki sem lög leyfa).

Af hverju Allianz Target4Life?

  • Persónuleg og sveigjanleg lausn byggð á sérsniði einstakra fjárfesta og fjárfestingarmarkmiða þeirra.
  • Ávinningurinn af því að dreifa á milli mismunandi eignaflokka yfir allan fjárfestingartímann.
  • Lausn með „sjálfstýringu“: Fjárfestirinn þarf ekki að hafa áhyggjur af lífsferilsleiðinni heldur getur hann einbeitt sér að lokamarkmiðinu.
  • Fagleg fjárfestingaraðferð ekki „knúin áfram af tilfinningum“, heldur stjórnað fyrir þig af fagfólki sem veitir þér hugarró á öllum stigum í verðsveiflum verðbréfamarkaða.

Target4Life í hnotskurn

Allianz Target4Life er sparnaðarlíftrygging sniðin að þörfum samningshafa. Sparnaður í evrum sem er persónumiðaður og sveigjanleg lausn sem miðast að hverjum einstaklingi fyrir sig.

Target4Life gerir þér kleift að fjárfesta með eingreiðslu (lágmark €5.000 án efri marka), reglulegu iðgjaldi eða sambland af hvoru tveggja.

Framúrstefnulegur valkostur tímasetninga gerir þér kleift að komast inn á markaðinn smám saman ef um er að ræða eingreiðslu.

Vítt fjárfestingartímabil, frá 5 til 25 ár, til að ná betur markmiði þínu og lifa lífinu lifandi á meðan samningur lifir.

Þrjú áhættusnið lífsferils, byggð af Allianz Global Investors, virk eignastjórnun með fjölmörgum eignaflokkum.

10% eða 20% til viðbótar við andlát vátryggðs einstaklings, allt eftir vali vátryggingartakans. Engin viðurlög við snemmbúinni innlausn.

Tryggingafélagið Allianz Globa Life var stofnað árið 2008 og sérhæfir sig í sparnaðar- og líftryggingalausnum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Dublin en félagið er með útibú í Þýskalandi,Frikklandi, Grikklandi, Ítalíu og Kýpur.

Ofangreindar upplýsingar eru settar fram í markaðsskyni og koma ekki í stað fjárhagslegar ráðgjafar. Vinsamlegast lestu skilmálana áður en þú notar vöruna. Fyrri frammistaða þessara samninga, innri tryggingasjóða og einstakra eigna sem þar er að finna telst ekki né getur talist trygging fyrir frammistöðu í framtíðinni.

Services we provide

VIEW ALL

Allianz GenialLife líftrygging

GenialLife er líftrygging sem tryggir rétthöfum samnings bætur í kjölfar andláts hins vátryggða.

Learn more

Tilgreind séreign

Öllum er skylt samkvæmt lögum að greiða í lífeyrissjóð.

Learn more

Viðbótarlífeyrissparnaður

Viðbótarlífeyrissparnaður eða séreignarsparnaður er ein verðmætasta eign okkar.

Learn more