
Afkoma er hluti af Brokerslink, alþjóðlegu neti vátryggingamiðlara sem nær til 133 landa umallan heim. Afkoma er eini íslenski samstarfsaðili Brokerslink og er með aðgang að víðtæku alþjóðlegu neti sérfræðinga, lausna og markaðstenginga. Í gegnum Brokerslink getur Afkoma því boðið viðskiptavinum tryggingalausnir um allan heim ásamt því að geta boðið erlendum aðilum tryggingalausnir á Íslandi. Afkoma heldur áfram að starfa sjálfstætt á íslenskum markaði en með styrk alþjóðlegs nets sem sameinar fagmennsku, nýsköpun og traust tengsl.

VPV var stofnað árið 1827 og er elsta líftryggingafélag Þýskalands, reynsla sem byggir á 190 ára farsælli sögu. VPV hefur í marga áratugi séð um lífeyristryggingar fyrir póst- og símastarfsmenn í Þýskalandi. Yfir þetta tímabil hefur VPV orðið öflugt og skapandi tryggingarfyrirtæki með samvinnu og gagnkvæmni. Ísland var eina landið fyrir utan Þýskaland, þar sem þeir stundu viðskipti en eru nú einnig í Noregi.

Tryggingafélagið Allianz Global Life var stofnað árið 2008 og sérhæfir sig í líftryggingalausnum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Dublin en félagið er með útibú í Þýskalandi, Frakklandi, Grikklandi og Ítalíu.

Lloyd’s, stofnað árið 1686, er leiðandi á heimsvísu í sérhæfðum tryggingalausnum. Með djúpa sérfræðiþekkingu og sterkt alþjóðlegt tengslanet tryggir Lloyd’s áreiðanlega vernd fyrir fyrirtæki og einstaklinga um allan heim.

April International býður upp á alþjóðlegar sjúkrakostnaðartryggingar fyrir þá sem að dvelja erlendis í bæði lengri og skemmri tíma. Í gegnum April International Care hafa vátryggðir aðgang að heilsugæslum og sjúkrahúsum út um allan heim. Hentar vel fyrir þá sem eru líka að ferðast utan EES svæðisins, þar sem April International er með mjög víðtæka heilbrigðisþjónustu í bæði Norður- og Suður Ameríku, Afríku og Asíu. Einnig eru þeir með séstakar sjúkrakostnaðartryggingar fyrir námsmenn erlendis, en oft gera skólar úti kröfu um að sjúkrakostnaðartrygging sé til staðar.